73. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, föstudaginn 24. maí 2019 kl. 13:13


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 13:13
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 13:13
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 13:13
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 13:14
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP) fyrir Rósu Björk Brynjólfsdóttur (RBB), kl. 13:13
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) fyrir Ara Trausta Guðmundsson (ATG), kl. 13:13

Vilhjálmur Árnason, Hanna Katrín Friðriksson, Karl Gauti Hjaltason og Bergþór Ólason boðuðu forföll.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:13
Frestað.

2) 542. mál - hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl. Kl. 13:15
Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti standa Jón Gunnarsson, Líneik Anna Sævarsdóttir og Helga Vala Helgadóttir.
Að auki skrifa undir álitið Ari Trausti Guðmundsson, Vilhjálmur Árnason, Hanna Katrín Friðriksson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir samkvæmt heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

3) 416. mál - öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða Kl. 13:17
Frestað.

4) Önnur mál Kl. 13:17
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:17